Rannsóknastofa
Á rannsóknastofu Livio starfar reynslumikið teymi fósturfræðinga með yfir 30 ára reynslu af frjósemismeðferðum. Markmið okkar er að hámarka möguleika hvers fósturvísis til að þróast og leiða til þungunar.
Við leggjum metnað okkar í að veita meðferð samkvæmt nýjustu þekkingu og bestu starfsvenjum á sviði glasafrjóvgunar. Fósturvísar eru ræktaðir á rannsóknastofunni í allt að fimm til sex daga eftir eggheimtu. Með lengri ræktun gefst betra tækifæri til að fylgjast með þroska fósturvísa og velja þá sem hafa bestu forsendur til áframhaldandi þróunar.
Í meðferðarferlinu munuð þið hitta starfsfólk rannsóknastofunnar við eggheimtu og fósturvísauppsetningu. Við leggjum áherslu á fagmennsku, öryggi og persónulega þjónustu og erum ávallt reiðubúin að svara spurningum og veita upplýsingar um ferlið.